24 Ágúst 2011 12:00

Fjórir ökumenn voru sviptir ökuréttindum til bráðabirgða í gær en þeir voru allir staðnir að hraðakstri á Suðurgötu í Reykjavík. Fjórmenningarnir óku Suðurgötu í suðurátt, að Skothúsvegi, en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír bílanna mældust á 65-72 km hraða en sá fjórði á 58. Ökumaður hans var hins vegar ölvaður og því sviptur fyrir þær sakir.