3 Febrúar 2009 12:00

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, átta á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Tólf voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þetta voru tíu karlar karlar á aldrinum 17-55 ára og fjórar konur, sem allar eru á þrítugsaldri. Flestir karlanna eru hinsvegar á fertugsaldri.