5 September 2011 12:00

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, níu á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 20-44 ára og tvær konur, 20 og 21 árs. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.