22 Nóvember 2011 12:00

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Sex voru teknir á laugardag, sjö á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 19-42 ára og tvær konur, 28 og 42 ára.