9 Mars 2010 12:00

Fjórum bílum var stolið á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn þeirra kom fljótlega í leitirnar og var piltur um tvítugt handtekinn vegna málsins. Lögreglan ítrekar að bílar séu ekki skildir eftir ólæstir og í gangi. Sé það gert er verið að bjóða hættunni heim. Þegar ökutækið er yfirgefið skal taka bíllykilinn með og alls ekki skilja hann eftir í kveikjulásnum eins og mörg dæmi eru um. Tíðar tilkynningar um nytjastuld undanfarið gefa til kynna að ökumenn þurfa að gera miklu betur í þessum efnum.