21 Ágúst 2011 12:00

Karl um þrítugt var handtekinn við sendiráð í borginni um tvöleytið í nótt. Maðurinn hafði farið inn á lóð þess og flaggað flík á fánastöng sendiráðsins. Hann vildi hvorki segja til nafns né framvísa skilríkjum. Eftir stutta dvöl á lögreglustöð var manninum sleppt en þá hafði verið gengið úr skugga um hver hann væri.