5 Ágúst 2019 10:30

Þá líður að lokum verslunarmannahelgarinnar og margir væntanlega á heimleið í dag. Við minnum á mikilvægi þess að ökumenn séu vel upplagðir við stýrið og að þeir hafi örugglega fengið langa og góða hvíld áður en lagt er af stað. Flýtum okkur hægt svo allir komist nú örugglega heilir heim.