17 Janúar 2023 16:23

Almannavarnanefnd Árnessýslu kom saman til fundar í dag.  Fyrir liggja upplýsingar um að flestar ár á Suðurlandi séu ísi lagðar og að líkur eru á að lægð gangi yfir landið á föstudag með nokkrum hlýindum og úrkomu.   Farið var yfir stöðuna og veðurspá eins og hún liggur fyrir í dag með þeim fyrirvara að nokkur óvissa er um framgang hennar.   Aðgerðastjórn  verður kölluð saman til upplýsingafundar í eftirmiðdaginn á fimmtudag þar sem nýjustu veðurspár verða yfirfarnar.

Enda þó umfjöllun undanfarna daga snúi helst að mögulegum flóðum vill nefndin beina því til íbúa að þeir hugi að hættu af grýlukertum á húsþokum, mögulegum leka þar sem snjór á þökum og svölum bráðnar og ekki síst að hreinsa frá niðurföllum þannig að leysingavatn eigi greiða leið niður.  Þá eru eigendur útigangshrossa á þekktum flóðasvæðum beðnir að huga að því hvort efni séu til að koma þeim á hærra land fari svo að ár ryðji sig.

Staðan í Ölfusá í dag.  Rennsli er beggja vegna Laugardælaeyju og ekki að sjá óvenjulega vatnssöfnun ofan hennar.