12 September 2012 12:00

Í dag standa yfir malbikunarframkvæmdir á Höfðabakka í Reykjavík, til  norðurs frá Stekkjarbakka að Bæjarhálsi. Gatan er lokuð til norðurs frá Stekkjarbakka en akrein til suðurs er opin. Áætlað er að framkvæmdum ljúki klukkan 13 í dag. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og aka varlega um vinnusvæðið.