25 Júní 2019 10:21

Ýmsar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á höfuðborgarsvæðinu í dag og má þar nefna að stefnt er að því að fræsa og malbika akrein á Vesturlandsvegi til suðurs, frá hringtorgi við Þingvallaveg að hringtorgi við Álafossveg. Akreininni verður lokað á meðan, en líklega mun vinnan standa yfir til kl. 18. Um kvöldmatarleytið er áformað að malbika báðar akreinar á Hringbraut, frá Melatorgi að Sæmundargötu. Veginum frá Melatorgi verður lokað og áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19 til kl. 6 í fyrramálið. Einnig er stefnt að því að fræsa tvær akreinar annars staðar á Hringbraut, eða frá gatnamótum við Njarðargötu og framyfir gatnamót við Nauthólsveg. Annarri akreininni verður lokað í einu, en áætlað er að þetta standi yfir frá kl. 19 til kl. 4 í fyrramálið.