14 Október 2014 12:00

Vegagerðin hefur gefið heimild til framkvæmda við viðgerð á malbiki á Kringlumýrarbraut, rétt fyrir neðan gatnamót Kringlumýrarbrautar, Suðurlandsbrautar og Laugavegar (þ.e. norðanmegin) sem mun eiga sér stað á morgun, miðvikudag, ef veður leyfir. Ein akrein verður alltaf opin fyrir umferð meðan á framkvæmdum stendur. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við malbikun standi yfir frá kl. 9 og fram eftir degi. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar á vinnusvæðinu.