6 Júní 2012 12:00

Í dag er áfram unnið við uppsetningu vegriðs á Miklubraut við Elliðaár. Að þessu sinni verður akrein lengst til vinstri á leið til vesturs lokuð á meðan á vinnu stendur. Meðfylgjandi mynd frá Vegagerðinni var tekin á vinnusvæðinu í gær en þá var ein akrein á leið til austurs lokuð vegna þessa.