29 Október 2019 20:30

Vegna vinnu við tvöföldun Reykjanesbrautar þarf að loka rampi frá Krýsuvíkurvegi inn á Reykjanesbraut í átt til Reykjavíkur. Rampurinn verður lokaður frá og með miðvikudeginum 30. október (eftir morgunumferð) til þriðjudagsins 12. nóvember og umferð er beint um Ásbraut meðan á framkvæmdum stendur.