29 Ágúst 2012 12:00

Annað kvöld, fimmtudaginn 30. ágúst, verður unnið við viðgerð á göngubrú yfir Reykjanesbraut, norðan Stekkjarbakka í Reykjavík. Vegna þessa verður lokað fyrir umferð frá Stekkjarbakka og inn á aðrein á Reykjanesbraut til norðurs. Ráðgert er að verkið hefjist klukkan 21 og standi fram á nótt. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát.