17 Ágúst 2016 09:46

Í dag er unnið að því að malbika Sæbraut til austurs. Vinnusvæðið byrjar við gatnamót við Laugarnesveg og nær fram fyrir gatnamót Klettagarða. Ein akrein er lokuð í einu og umferð hleypt framhjá en ekki verður hægt að beygja inn Klettagarða. Lokanir og hjáleiðir verða merktar meðan á vinnunni stendur eða til kl. 15.

Vakin er athygli á að vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki verða við vinnu mjög nálægt akstursbrautum. Því er brýnt að vegfarendur virði lokanir og hraðatakmarkanir og sýni aðgát við vinnusvæðin.