10 Mars 2020 20:00

Miðvikudaginn 11. mars verður stuttum vegkafla á Strandgötu í Hafnarfirði lokað frá kl. 9.30-12 vegna uppsetningar á vinnustaðamerkingum, en um er að ræða þann hluta Strandgötu sem liggur undir Reykjanesbraut líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hjáleiðir eru um Krýsuvíkurgatnamót og Kaldárselsveg.