26 Nóvember 2019 08:50

Í dag, þriðjudaginn 26. nóvember, eru fyrirhugaðar malbiksviðgerðir í Skeiðarvogi í Reykjavík. Áætlað er að framkvæmdir hefjist kl. 9 og standi fram yfir hádegi. Vegna þessa þarf að loka fyrir umferð í báðar áttir í Skeiðarvogi á milli Sæbrautar og Langholtsvegar.