30 Apríl 2015 14:32

Vegna lagningar á nýrri vatnslögn þvert á Laugaveg upp við Kringlumýrarbraut verður lokað tímabundið fyrir umferð um Laugaveg við gatnamótin.  Lokað verður frá kl. 18.00 á föstudaginn 1.maí og umferð beint um hjáleiðir. Opnað verður á ný kl. 7.00 á mánudag, þann 4.maí. Lokunina má sjá á meðfylgjandi korti.

Kringlumýrarbraut verður opin, en ekki verður hægt að beygja inn á Laugaveg.  Bílaumferð vestur Suðurlandsbraut þarf einnig að fara um hjáleiðir, en gangandi og hjólandi komast stíginn meðfram Laugavegi.

Strætó mun nota hjáleið um Borgartún og Nóatún. Settar verða upp merkingar á þeim biðstöðvum sem falla út. Við biðjum ökumenn að velja sér hjáleiðir við hæfi, vegna þessarra lokanna.

Lokun Laugavegur