25 Maí 2015 12:58

Unnið er við að leggja nýja vatnslögn meðfram Kringlumýrarbraut í Reykjavík og á morgun, þriðjudaginn 26. maí, verður byrjað að grafa fyrir henni þvert á Háaleitisbraut. Vegna framkvæmdanna verður þeim kafla Háaleitisbrautar sem liggur frá Kringlumýrarbraut að Skipholti lokað tímabundið. Áætlað er að lokunin vari í viku en brjóta verður lögninni leið um klöpp undir götunni.

Framkvæmdirnar hafa ekki áhrif á umferð bíla um Kringlumýrarbraut að frátöldu því að geta ekki beygt inn á þennan kafla Háaleitisbrautar að Skipholti.  Gangandi og hjólandi um gatnamótin þurfa einnig að leggja lykkju á leið sína. Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát við framkvæmdasvæðið og á hjáleiðum.

Framkvæmdin í heild er lagning 600 mm vatnslagnar meðfram Kringlumýrarbraut frá dæluhúsi neðan við Laugaveg upp að Miklubraut.  Vatnslögnin kemur meðfram núverandi gönguleið vestan Kringlumýrarbrautar og á síðari stigum verksins kemur nýr hjólastígur ofan á hana. Jarðvegsframkvæmdirnar nýtast þannig bæði vatnslögninni og hjólastígnum.

Verkið er unnið í samstarfi Reykjavíkurborgar, Orkuveitunnar, Mílu og Vegagerðarinnar.

Tímabundin-Lokun-Háaleitisbraut