25 Nóvember 2004 12:00

Lögreglan í Kópavogi  rannsakar nú mál er varðar brottnám á níu ára gamalli stúlku  um kl. 15:45 í gærdag.  Þetta var á hringtorgi við Álfhólsveg og Bröttubrekku í Kópavogi.  Maðurinn var um tvítugt og á rauðum fólksbíl.  Hann ók stúlkunni að afleggjaranum að Skálafelli en þar lenti hann í snjókrapi og lét stúlkuna fara út úr bílnum en ók síðan í burtu og skildi hana eina eftir.  Stúlkan var síðan tekin upp af ökumanni sem ók fram á hana á Þingvallavegi og lét hann strax foreldra stúlkunnar vita.  Ef  einhver getur gefið lögreglunni frekari upplýsingar um þetta mál er óskað eftir að hringt sé til lögreglunnar í Kópavogi  í síma 560 30 41.

Björgvin Björgvinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn

Kópavogi.