2 Desember 2013 12:00

Um kl. 03:00 var lögreglu tilkynnt um háværa hvelli sem bærust frá íbúð í Hraunbæ. Almennir lögreglumenn voru sendir á staðinn til þess að kanna málið. Sérsveitarmenn voru sendir þeim til aðstoðar.

Þegar lögreglan reyndi að hafa samband við íbúa og fékk ekki svar var hurðin að íbúðinni opnuð og sérsveitarmenn með hlífðarbúnaði ætluðu að kalla inn í íbúðina var skotið á þá úr haglabyssu. Skotið lenti í skildi sérsveitarmanns sem kastaðist við það aftur og féll niður stiga.

Lögreglan dró sig til baka og kallað var út aukinn liðsstyrkur. Því næst var farið í að rýma íbúðir við stigaganginn og koma almennu lögreglumönnunum út um kl. 05:00. Auk þess sem sjúkrabifreiðar voru kallaðar á vettvang til öryggis.

Þegar því var lokið og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til þess að ná sambandi við íbúann og í ljósi almannahættu vegna fólks sem væri á ferli í nágrenni hússins var ákveðið að reyna að yfirbuga viðkomandi með beitingu gasvopna. Sú aðgerð hófst um kl. 06:00.

Það næsta sem gerist er að viðkomandi hefur að skjóta út um glugga íbúðarinnar. Ekki var að fullu ljóst hvort beiting gasvopna hafi haft fullnægjandi áhrif en í slíkum tilfellum að viðkomandi kemur ekki út úr gasmettuðu rými geta lögreglumenn þurft að sækja viðkomandi inn.

Er sérsveitarmenn  fóru inn í íbúðina skaut viðkomandi nokkrum skotum að sérsveitarmönnum og hitti í höfuð sérsveitarmanns sem féll við auk þess sem skot fóru fram hjá höfðum annarra. Á þeirri stundu beitti sérsveitin skotvopnum til þess að yfirbuga viðkomandi og særði hann.

Sérsveitarmenn hófu þegar lífsbjargandi aðgerðir og kallað var eftir bráðatæknum SHS sem voru nærtækir. Hann var strax fluttur á slysadeild. Hann var síðan úrskurðaður látinn.

Meiðsli lögreglumannanna reyndust ekki alvarleg og ljóst að hlífðarbúnaður þeirra kom í veg fyrir mjög alvarlegan skaða. Þá er ljóst að almennir lögreglumenn sem fóru fyrst á staðinn voru í mikilli hættu.

Við fyrstu sýn verður ekki betur séð en sérsveitarmennirnir hafi farið eftir verklagsreglum en ríkissaksóknari hefur tekið við rannsókn málsins.

Lögreglan harmar umræddan atburð og vill koma á framfæri innilegum samúðarkveðjum til ættingja mannsins.

 Frá blaðamannafundi lögreglunnar.