31 Október 2006 12:00

Fjörutíu og sjö ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík í gær. Í þeim hópi er kona á þrítugsaldri en hún á yfir höfði sér ökuleyfissviptingu. Bíll konunnar mældist á rúmlega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða í íbúðargötu.

Tíu ökumenn voru stöðvaðir fyrir nota ekki bílbelti og sex töluðu í síma án þess að notast við  handfrjálsan búnað. Þá voru fjórir ökumenn teknir fyrir að aka gegn rauðu ljósi. Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur og einn fyrir að aka sviptur ökuréttindum.

Í gær bárust lögreglunni í Reykjavík fjórtán tilkynningar um umferðaróhöpp en í einu tilfelli var um afstungu að ræða. Vitað var um slys á fólki í einu tilviki en það var minniháttar.