16 Febrúar 2022 14:39

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Ægisíðu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ægisíðu í austurátt, á móts við Ægisíðu 125. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 121 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 40 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Ægisíðu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.