20 Ágúst 2015 16:45

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, við Garðaholtsveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 171 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust á 79 og 82 (2) en þarna er 70 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.