12 Mars 2015 12:55

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Ásbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, við Álftaás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Ásbraut, en á meðan henni stóð gekk á með éljum og snóþekja var á akbrautinni, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.