17 Ágúst 2015 14:44

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Eggertsgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eggertsgötu í austurátt, á móts við Eggertsgötu 24. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu, ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 49 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Eggertsgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.