4 Desember 2015 17:05

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hafnarfjarðarvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í suðurátt, við Arnarneslæk. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 911 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða, en þarna er 80 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 90, 92 og 95 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Hafnarfjarðarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.