15 Maí 2014 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hagamel í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hagamel í austurátt, á móts við Reynimel. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 54 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 39 og 44 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Hagamel er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.