16 Júlí 2013 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hjallabraut í Hafnarfirði á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjallabraut í vesturátt, að Breiðvangi. Á einni klukkustund og tuttugu mínútum, fyrir hádegi, fóru 162 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 61 og 63 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Hjallabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.