23 Maí 2016 16:44

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hjarðarhaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, að Dunhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 40 og 42.

Vöktun lögreglunnar á Hjarðarhaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.