14 Mars 2016 17:42

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hraunbrún í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hraunbrún í austurátt, á móts við Hraunbrún 30. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 20 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 39 og 40.

Vöktun lögreglunnar á Hraunbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.