10 Mars 2020 12:51

Langflestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Kársnesbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kársnesbraut í austurátt, á móts við Kársnesbraut 33. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 221 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema fimm ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Kársnesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.