26 Október 2009 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit á Kirkjubraut á Seltjarnarnesi í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru engin brot mynduð á Kirkjubraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Skólabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru aðeins 11 ökutæki þessa akstursleið og voru ökumenn þeirra allir til fyrirmyndar, eins og að framan greinir, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Kirkjubraut, en í nágrenninu eru bæði Valhúsaskóli og Mýrarhúsaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.