6 Nóvember 2009 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við umferðar- og hraðaeftirlit á Kirkjuteig í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru engin brot mynduð á Kirkjuteig en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, við Laugarnesskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 19 ökutæki þessa akstursleið og voru ökumenn þeirra allir til fyrirmyndar, eins og að framan greinir, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Kirkjuteig, en við götuna er fyrrnefndur skóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þess má einnig geta að lögreglunni höfðu borist ábendingar frá íbúum sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað.