1 Október 2010 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Kópavogsbraut í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kópavogsbraut í vesturátt, við Kársnesskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 52 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Þeir sem óku of hratt mældust á 60 og 69.

Vöktun lögreglunnar á Kópavogsbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.