20 Ágúst 2012 12:00

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Kristnibraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í austurátt, á móts við leikskólann Geislabaug. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 53 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 59 og 63 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.