18 September 2019 11:20

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Laugarásvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugarásveg í suðurátt, á móts við Laugarásveg 16. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 63 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða en þarna er 50 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 59 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Laugarásvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt á meðan hraðamælingunni stóð.