28 Ágúst 2018 16:12

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Lindarbraut á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lindarbraut í suðurátt, á móts við Lindarbraut 25. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða. Hinn brotlegi mældist á 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Lindarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.