29 Nóvember 2012 12:00

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Lynghaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lynghaga í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 16 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 39 og 40 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Lynghaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.