17 Ágúst 2015 14:43

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Norðurströnd á Seltjarnarnesi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, að Látraströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 146 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust á 69 og 70 (2) en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.