10 Júní 2014 12:00

Langflestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Fornuströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema fjórum ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.