26 Ágúst 2015 16:00

Flestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Öldugötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Öldugötu í austurátt, við Stýrimannastíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Sá sem hraðast ók mældist á 47 en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Öldugötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.