24 Október 2013 12:00

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Rafstöðvarvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Rafstöðvarveg í suðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 61 og 64 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Rafstöðvarvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.