19 Nóvember 2013 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Reykjanesbraut í Hafnarfirði  í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í austurátt, að Kaldárselsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 466 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 80 km hámarkshraði. Meðalhraði ökumanna var 75.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.