3 Október 2013 12:00

Langflestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjavíkurveg í norðurátt, á móts við Nönnustíg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 396 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema sex ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði. Meðalhraði hinna brotlegu var 61 km/klst.

Vöktun lögreglunnar á Reykjavíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.