24 Janúar 2020 17:04

Flestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Sæbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, við Kirkjusand. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 468 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema sex ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 70 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur, snjóþekja og hálka var á meðan hraðamælingunni stóð.