25 Nóvember 2015 12:22

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Selásbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt, á móts við Selásskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 54 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 40 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu