29 Nóvember 2012 12:00

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Selásbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Selásbraut í norðurátt, við Selásskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust á 41 og 47 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Selásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. Þess má geta að við fyrri hraðamælingar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 29-39%, en síðan þá hafa verið gerðar hraðahindrandi aðgerðir. Miðað við niðurstöðuna í gær hafa þær aðgerðir skilað árangri.