7 Október 2010 12:00

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Skólabraut í Mosfellsbæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Skólabraut í austurátt, við Varmárskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 27 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Skólabraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.