2 Febrúar 2023 09:02

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Strandvegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Strandveg í suðurátt, við Gylfaflöt. Á hálfri klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Strandvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.